Undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.
Efni hennar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
Þriðjudaginn 23. febrúar í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri
(Miðvikudaginn 3. mars í Tunguseli, Skaftártungu) - ATH. FRESTAÐ UM VIKUTÍMA EÐA SVO!!
Fimmtudaginn 4. mars á Laugalandi í Holtum
Fundargestum gefst kostur á að koma ábendingum og athugasemdum við drögin á framfæri.
Sýn heimamanna og annarra hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur í þessari vinnu og því eru allir hvattir til að mæta!
Hér má nálgast útdrátt úr verndaráætluninni, sem fólk er eindregið hvatt til að kynna sér.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Eiríksdóttir
í s. 8998767, netfang ibi@hi.is